Vefverslunin Petite Coquette er án efa einhver stærsta undirfatanetverslun heims. Þar er mikið úrval af undirfatnaði frá hundruðum tískuhönnuða og á síðunni má meðal annars finna nærfatnað fyrir dömur og herra, óléttufatnað, náttfatnað, ilmvötn og fleira lekkert.
Þar er að finna bestu bitana frá hundruðum hönnuða, vörur sem seljast ansi hratt því þær eru í takmörkuðu magni.
Síðan leggur mikið upp úr mikilli breidd í vöruverði, hægt er að gera góð kaup á útsölum sem eru reglulega haldnar eða kaupa á hæsta verði – allt eftir löngunum hvers og eins.
Smellt HÉR til að fara á vefsíðuna – svo má skoða nokkur sýnishorn hér. Sætt og sexý.
http://boutiques.petite-coquette.co.uk/Frankly-darling%1CGuðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.