Bandaríska tímaritið V er þekkt fyrir frábæra ljósmyndaþætti þar sem ekkert er til sparað.
Á síðasta ári sátu þessar eðal fyrirsætur fyrir í myndaþætti sem byggðist á Pin Up hefðinni en í öllu nútímalegri útfærslu. Léttklæddar liggjandi á rúmum í flottum undirfötum og elegant pósum. Takið eftir því hvað sum rúmin eru flott (sérstaklega þetta með rauða plussinu) og veggfóðrin brjáluð. Svo ekki sé minnst á allar sokkabuxurnar…
Fyrirsætur: Suvi Koponen, Meghan Collison, Kate Moss, Guinevere Van Seenus, Daria Werbowy, Du Juan, Lara Stone, Angela Lindvall, Devon Aoki, Eva Herzigova, Isabeli Fontana, Shannan Click, Amber Valletta, Missy Rayder, Raquel Zimmermann.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.