Eins og ég hef oft skrifað um áður þá á ég mjög erfitt með að prófa nýjan maskara. Ég finn mér þann sem mér líkar við og held mig við hann í mörg ár.
Sexy lash queen frá HR kom mér ótrúlega skemmtilega á óvart. Ég verð að byrja að segja frá umbúðunum sem maskarinn kemur í – gylltar með blúndu! Þess má geta að þessi maskari er sá fyrsti í röðum snyrtivara sem er með efnisáferð og hann sæmir sér vel upp á borði bara sem skraut sem maður grípur í til að mála sig með. Ótrúlega falleg vara sem gaman er að handleika.
Eiginleikar maskarans eru þeir að hann veitir hámarks þéttleika og það er VAX COMPLEX formúlu að þakka, hann veitir einstaka sveigju ásamt því að yfirborðsvirk efni binda vaxið frá rót að enda augnháranna.
Framleiðendur HR fengu innblástur frá Calais Lace sem eru sérfræðingar í blúndugerð (áferð pakkningarinnar) en þeir búa til fallegustu gæðablúndurnar í heiminum í dag.
Maskarinn er eins og blúndan, falleg og í hæsta gæðaflokki en því meira magn af honum sem þú berð á augnhárin því þykkari og fallegri verða þau. Maskarinn endist vel út daginn og hann byrjar ekki að molna eða verða leiðinlegur þegar líða fer á daginn. Og ef þú ferð úr daglúkki yfir í kvöldlúkk er ekkert mál að fríska aðeins upp á maskarann með því að bera nokkar umferðir af honum yfir augnhárin aftur, þá verður útlitið enn dramatískara og augun verða meira áberandi.
Mér finnst best að bera maskara á mig með sikk sakk hreyfingu og sú aðferð virkar frábærlega með þessum maskara en burstinn er kallaður “90-60-90” þar sem hann er breiðari í endana og mjórri í miðjunni. Dásamlegur maskari sem ég mæli heilshugar með!
Hér að neðan getur þú einnig séð kennslumyndband frá snyrtifræðingum HR þar sem sýnt er hvernig á að bera maskarann á sig, taktu eftir því að hún byrjar á neðri augnhárunum sem er frábær lausn gegn smiti.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=TKNtzik8P2U[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig