Vinkona mín hringir í öngum sínum. Hún hafði hitt afar sjarmerandi karlmann úti á lífinu. Þau dönsuðu og skemmtu sér mjög vel og fóru á endanum saman heim til hans eftir að djamminu var lokið.
Lengjast þau mest?
Þegar ég svara segir hún bara strax:
„Hann var með svo lítinn lim,” og var þvílíkt spæld. Hún sagði mér að það hefði verið það lítið að hún vissi ekki hvort hún hefði átt að flýja af hólmi, segja eitthvað eða bara láta vaða.
Ég spyr á móti hver hafi nú verið svona smátt niður vaxinn og þá áttar hún sig á því að auðvitað vissi ég ekkert að hún hafi náð sér í karlmann þetta kvöld. Við hlógum að þessu í smá stund en svo fór umræðan aftur að litla herramanninnum.
Ættu þeir að ganga með varúðarskilti á sér?
Mín skoðun er almennt sú að ekki skyldi dæma fyrirfram og ég stend alveg við þá yfirlýsingu mína en þegar karlmenn með þetta vandamál kunna ekki einu sinni góðar kúnstir til að fullnægja konu á annan hátt, finnst mér að þeir ættu að vara hana við áður en hún er plötuð heim.
Engin kona fær fullnægingu eingöngu við inn-út inn-út hreyfinguna. Nei, það þarf ýmislegt meira til.
Það að vera með lítið typpi er auðvitað eitthvað sem ég veit lítið um því ég get ekki sett mig í spor karlmanns sem fær lítinn skammt frá skapara sínum. Það hlýtur samt að vera ofsalega erfitt þegar karlmennskunni eru ekki gerð almennileg skil og sumir fá risa eitthvað sem sómir sér á frjósemistákni en aðrir varla sýnishorn.
Ættum við að fara með tékklista út á lífið?
Það liggur við að til þess að lenda ekki í svona vandræðalegum aðstæðum að konur ættu bara að grípa í jafnaldrann á karlmanninum sem þær eru að spá í til að geta verið vissar um að hann sé nú með eitthvað sem hægt er að nota og hvort það stækki við snertingu. Ég fór líka að spá hvort karlmenn kannski geri sér ekki grein fyrir því að vinurinn á þeim er afar smár? Kannski eru þeir bara í algjörri afneitun?
Kona sem er flatbrjósta eða með svakalega smá, nú eða stór brjóst er mjög meðvituð um það. Margar fara í brjóstastækkun (eða minnkun) og eftir það lagast sjálfstraustið algjörlega hjá flestum og þær eru allt í einu farnar að ganga í voða flegnum bolum og flagga dýrðinni stoltar.
Swedish made penis enlarger!
Ef karlmaður færi og léti stækka á sér jafnaldrann af því smæðin væri að há honum andlega þá myndi engin vita af því. Hann færi í aðgerðina, jafnaði sig heima og þú sæir hann ekki með allt góssið flaggandi bara til að sýna að hann sé nú loksins maður með mönnum líkt og með stelpur sem hafa farið í brjóstaaðgerð. En eru karlmenn sem hafa lítið á milli fótanna eitthvað minni menn en þessir sem eru með stóran? Ég hugsa að ansi margar konur hafi verið í bólinu með manni sem getur ekki einu sinni flaggað í hálfa, og þá gildir stærðin jú einu.
Samantha lenti í þeim nokkrum
Ég man eftir einum fyndnum þætti úr Sex and The City þegar Samantha var að deita náungann með litla typpið. Þau voru nakin í rúminu og hann að hamast á henni þegar hún lætur út úr sér : „Is it in yet?“
Úff, hvaða karlmaður sem er myndi missa allt niður við að heyra svona setningu. Í öðrum þætti var Sam að deita einn sem var með rosa stóran. Hún átti í vandræðum með að stunda kynlíf með honum því hún meiddi sig og fékk bara ekkert út úr þessu. Það var allt prófað, hver stellingin á fætur annarri en allt kom fyrir ekki. Það gekk engan veginn upp. Það varð bara ekkert gaman hjá henni.
Svo málið er að þarna erum við komnar að hinum gullna meðalvegi eða réttara sagt hinni gullnu meðalstærð. Lítil typpi lengjast ekki mest það er alveg vitað. Og of stór typpi gera ekki gott gagn fyrir flestar konur.
Svo karlmenn, verið glaðir með ykkar meðalstærð en ef hann neitar að standa sig – þá er bara að redda því. Nægar eru lausnirnar.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.