Tjáskipti eru lykillinn að frábæru kynlífi. Það geta verið ákveðnir hlutir sem við þorum ekki að tala um af ótta við að verða særð, sérstaklega ef við höfum reynslu fyrir því að vera hafnað.
En ef þú getur ekki tjáð þig almennilega við maka þinn getið þið fjarlægst hvort annað – og þessi fjarlægð mun hafa áhrif á kynlífið.
Vertu viss um að geta beðið um faðmlag eða hlý orð hvenær sem þú þarft á því að halda til huggunar og geta veitt slíkt þegar þess er óskað af þér.
Ekki óttast að sýna makanum slæmu hliðarnar hverjir sem veikleikar þínir eru eða hvað sem það er sem þér finnst þú ekki alveg standa þig nógu vel í.
Kynlífið með makanum speglar aðrar hliðar sambands ykkar. Tilfinningaleg nánd mun koma í gegn í svefnherberginu og leiða til betri reynslu og betra sambands fyrir ykkur bæði – í bólinu sem utan þess.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.