Kynæsandi undirfatnaður er eitthvað sem margir hafa gaman af en kynæsandi undirfatnaður fyrir karlmenn. Það er svo önnur og öllu meira framandi deild.
Já, vefsíðan XDress hefur allar gerðir af blúndufatnaði fyrir strákana… og slagorðið þeirra er “Skelltu honum í blúndur, þú sérð ekki eftir því.”
Úlalla. Einmitt. Þormóður með bjórmagann vafinn í blúndur. Líklegt? Held ekki…
…en það þarf víst allar gerðir af fólki til að skapa þennan heim og auðvitað er allt til á netinu.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.