Þetta er mjög einfalt: Áður en þið sleppið ykkur lausum í samfarir skuluð þið prófa að halda þétt utan um hvort annað í hálfa mínútu.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að þegar við höldum utan um hvort annað losar heilinn út hormón sem kallast oxytocin, en það framkallar bæði vellíðan og nándartilfinningu. Nándartilfinningin gefur svo aftur betra kynlíf og betra samband, meiri væntumþykju og meiri ást.
Þannig að…
Knúsa!
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.