Fór á frænkukvöld um daginn og hitti þar allar mínar uppáhaldsfrænkur. Þar var mikið slúðrað og hlegið.
Við drukkum hvítvín og borðuðum osta langt fram á kvöld og skemmtum okkur konunglega saman. Ég og Sigga frænka vorum þær síðustu í frænkupartýinu. Eflaust því við þurfum alltaf að tala svo ofsalega mikið saman þegar við hittumst. Sigga er þessi hressa fyndna týpa sem lætur allt flakka. Endalaust fyndin og hefur prufað allt milli himins og jarðar.
Sigga er í sambandi með Dóra. Þau eru búin að vera saman í nokkur ár og eru frábær saman. Við fórum á trúnó, báðar komnar vel í glas og byrjuðum að tala um samböndin sem við erum í. Sigga sagði mér að þau Dóri hefðu lent í frekar neyðarlegu atviki fyrir nokkru síðan. Þau væru í raun enn að jafna sig. Svo mikið var sjokkið að þau voru lítið sem ekkert búin að ræða þetta við neinn, hreinlega þorðu því ekki.
Ég varð svo spennt að ég bað Siggu um að drífa sig í þessu, segja mér frá og það strax! Svo Sigga hóf frásögnina…
Hlutverkaleikir…
Kynlífið hjá þeim Dóra var farið að vera lítið og lélegt eftir að árunum fjölgaði. Með heppni gerðu þau það einu sinni í mánuði. Þau voru sammála um að þetta væri algjörlega glatað, eitthvað þyrfti að gera til að kynda bálið á ný.
Þau skelltu sér út í bókabúð og keyptu sér nokkrar kynlífsbækur. Þegar heim kom var ákveðið að kíkja á eina af bókunum og athuga hvaða ráð myndu duga. Eitt ráðið var að horfa á klámmyndir saman. Annað var að þau áttu að nudda hvort annað með olíu og jafnvel rjóma. Svo kom þriðja ráðið, þar var ráðlagt að parið myndi fara í hlutverkjaleiki. Fara í búninga og koma sér í hlutverk. Þetta var eitthvað sem þeim leist ágætlega á svo þau prufuðu strax næsta kvöld. Sigga hafði skellt sér í hjúkkubúning og Dóri lék veikan hermann. Leikurinn fór algjörlega á flug og þau gleymdu stað og stund. Gleymdu algjörlega að þau væru Sigga og Dóri. Nú voru þau spennandi á ný í augum hvors annars!
Hústökufólk í Garðabæ
Viku síðar var mamma hennar Siggu að fara til Boston í helgarferð. Mamma hennar á einbýlishús í Garðabæ og vill helst ekki skilja það eftir tómt á meðan hún er úti svo hún bað Siggu og Dóra um að passa húsið. Það fannst þeim ekkert mál og hugsuðu stax að gaman væri að fara í hlutverkaleik heima hjá tengdó. Nýtt sport.
Þau ákváðu að koma hvort öðru á óvart og hittast heima hjá tengdó á föstudagskvöldinu, bæði klædd í einhvern spennandi búning. Sigga sagðist alltaf hafa langað til vera Playboy kanína svo hún keypti sér þannig búning.
Klukkan 9 á föstudagskvöldinu sat Sigga í sólstofunni í einbýlishúsi móður sinnar í bleikum kanínu búning, tilbúin til að hitta Dóra sinn. Dóri mætti tímanlega og varð Sigga hálf orðlaus þegar hún sá hann. Hann var klæddur í latex buxur með engum rassi, þröngum svörtum hlýrabol og með gaddaól um hálsinn. Í beltinu voru handjárn og svipa. Svona hafði Sigga aldrei séð hann Dóra sinn. Dóri er í þéttara lagi, mikill og mjúkur maður um fertugt. Hárið farið að þynnast og minnir síst á leðurklæddan töffara. Hvað þá latex.
Eyjafjallajökull
Dóri sveipaði sér inn í sólstofuna og sagði að Sigga væri bitshið sitt í kvöld. Hann væri aðal gaurinn og nú skyldi hún fá að finna fyrir því. Hann dró upp handjárnin og skellti þeim á Siggu. SMELL! Setti rokkaða tónlist í græjunar og hækkaði vel í. Siggu hitnaði og fannst þetta verulega spennandi. Dóri var algjörlega í essinu sínu, þvílíkt heitur í hennar augum. Hún hló og spenntist öll upp.
Þegar leikurinn stóð í hámarki heyrðist skerandi óp fyrir aftan þau. Þau litu við og stóð þá ekki tengdó í öllu sínu veldi inn í sólstofunni…fluginu hafði verið frestað útaf öskufoki úr Eyjafjallajökli. Sú gamla stóð þarna náhvít í framan og horfði til skiptis á dóttur sína í bleika kanínubúningnum og sveittan tengdarsoninn í alltof þröngum latex búningi með rassinn gapandi framan í hana.
Dóra brá svo mikið að hann hljóp út um svalahurðina og beint út í garð. Hann skammaðist sín svo mikið að hann vissi ekkert hvað átti að gera. Svo hann hljóp um hálfan Garðabæ í latexgallanum, með svipuna og hundaólina flaxandi utaná sér.
Rúnturinn
Sigga frænka var að spá í að hlaupa á eftir honum en ákvað frekar að fara á bílnum og finna kallinn sinn. Svo hún keyrði um kyrrlátar göturnar í von um að sjá Dóra á hlaupum. Hún var búin að keyra í þónokkurn tíma þegar hún sá svarta hrúgu á gangstéttinni, hún snarstoppaði og hljóp út til Dóra.
Niðurlút og hálf skömmustuleg keyrðu þau í þögn heim til sín. Þau heyrðu ekki í tengdó í marga daga eftir þetta og Dóri sat með krosslagða fingur að enginn af nágrönnum hennar tengdó hefðu séð sig og tekið myndir af þessum íturvaxna karlmanni með mjúka rassinn sinn hlaupandi eins og strokufangi út um allt hverfið.
Já sögurnar hennar Siggu frænku eru bestar. Hún sagðist vona að þau gætu hlegið að þessu einn daginn, en enn sem komið er hafa þau lagt búningana upp í efstu hillu inn í skáp og minnst ekki á þetta kvöld við einn eða neinn – nema mig.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.