Þegar ég var ung og barnlaus svaf ég einu sinni hjá Kalla en Kalli kallaðist strákur sem var að reyna við okkur í vinkonuhópnum til skiptis.
Aðal pikköpp línan hans var að hann kynni tantranudd. Þetta var svona sætur, andlegur, mótorhjólastrákur sem var duglegur í ræktinni og kunni já… tantranudd.
Við vorum þrjár sem létum til leiðast og þáðum “nuddið”.
Það krafðist þess auðvitað að maður var alveg nakin en svo leiddi eitt af öðru og eftir smá tíma var eitthvað farið að gerast sem enginn myndi flokka sem nudd í þeim skilningi.
Hann var nefninlega hvorki ljótur né latur en það var eitthvað við hann sem gerði það að verkum að við höfðum engann áhuga á honum sem maka. Enginn okkar. Hann var bara svoddan kjáni. Svo okkur fannst bara hrikalega fyndið að við hefðum allar sofið hjá Kalla.
Til að byrja með vissi engin okkar að aðrar í vinkonuhópnum hefðu verið með honum og fengið þetta nudd sem hann bauð upp á, alveg ókeypis en þegar það kom loks upp á yfirborðið fengum við auðvitað allar hálfgert kast. Þreyttar einhleypar konur í fullri vinnu eða námi eiga auðvitað erfitt með að standast ókeypis boð um tantranudd sem laglegur og glaðlyndur en nokkuð treggáfaður maður býður upp á með eftirvæntingu.
Hann var svoddan kjáni
Hann var nefninlega hvorki ljótur né latur en það var eitthvað við hann sem gerði það að verkum að við höfðum engann áhuga á honum sem maka. Enginn okkar. Hann var bara svoddan kjáni. Svo okkur fannst bara hrikalega fyndið að við hefðum allar sofið hjá Kalla.
Það fyndnasta var þó að við vorum allar sammála um eitt. Þátt fyrir að þykjast mjög andlegur og djúpur var hann mjög annars hugar í kynlífinu og taktarnir í honum voru eins og hann væri að reyna að vera leikari í klámmynd. Tantra hvað?
Hann reyndi að gera eins margar stellingar og hann gat og hreyfingar hans voru eins og hann hefði stúderað strippara sérstaklega áður en lengra var haldið. Ef þetta var tantra þá höfðum við ekki áhuga á meira tantra.
Hann virtist greinilega ekki að þessu af því hann naut þess að stunda kynlíf og vildi sérstaklega vera með okkur, hann naut þess bara að komast yfir konur og performera síðan eins og “skemmtikraftur” sem fær borgað í viagra og eiturlyfjum.
Tilfinningalaust kynlíf er leiðinlegt
Við vinkonurnar vorum sammála um að Kalli væri kjáni og enginn okkar vildi vera með honum aftur. Það vantaði bara alveg tilfinninguna í hann. Tilfinningalaust kynlíf er leiðinlegt, jafnvel þó þú stundir það bara með eina nótt í huga eða svona til að lyfta þér upp.
Þegar ég segi tilfinning þá er ég ekki að tala um „ég elska þig og mig langar að giftast þér” tilfinninguna. Meira tilfinninguna fyrir því að njóta þess að vera saman, gefa af sér og þiggja.
Það fer auðvitað mjög lítið fyrir þessu öllu í klámi og menn sem reyna að stunda kynlíf eins og klámmyndaleikarar eru algjörlega á rangri leið. Það sama gildir auðvitað um konur.
Nú vitum við vinkonurnar ekki hvað hann Kalli er að gera í dag en vonandi er hann hættur þessari tilgerðarlegu tantra vitleysu og byrjaður að stunda kynlíf af tilfinningu og innlifun.
Það langar engan að vera með vélmenni í rúminu. Þó þau séu hörð þá eru þau ekki kynþokkafull. Sama af hvaða kyni þau eru. Og bestu “klámmyndirnar” verða til í höfðum þeirra sem horfa aldrei á klámmyndir.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.