Intimate Organics vörurnar eru nýlega komnar á markað á Íslandi en þetta eru að mínu mati alveg frábærar vörur fyrir fullorðna leikfélaga.
Intimate Organics vörurnar eru allar lífrænt vottaðar, paraben lausar og án allra skaðlegra aukaefna, unnar úr guana berki sem er bakteríudrepandi og þær ættu því að henta þeim sem eru með viðkvæma húð.
Inní vörulínunni frá þeim eru nudd- og húðolíur, gel og sprey sem örva g-blettinn, snípinn ofl. hreinlætisvörur og sleipiefni með lykt og bragði en líka án þess.
Það sem heillaði mig fyrst við vörurnar er hvað þær eru náttúrulega. Ég þoli ekki öll sleipiefni og langaði því að prófa þessar vörur. Það er mikið úrval sleipiefna til hjá Intimate Organics, bæði hitaaukandi og venjulegt, svo er líka til sérstakt fyrir þau sem stelast stundum til að “fara inn bakdyramegin”.
Líkamar okkar eru misjafnir, stundum fer það eftir tíðahringnum hvernig við virkum þarna niðri og stundum er þurrkur í leggöngum sem dregur úr ánægju í kynlífi. Þurrkurinn getur verið tímabundinn en hann fer líka eftir aldri og svo eru sumar sem nota bara alltaf sleipiefni af því þeim finnst það einfaldlega betra, líka í forleik og fikti.
Hitaukandi sleipiefni
Ég og minn heittelskaði prófuðum sleipiefni með kirsuberja lykt og bragði um helgina.
Mér fannst það rosalega þægilegt og það gaf passlega mikinn hita, ég myndi þó bara nota það í samförum og í ekki of langan forleik því ég fann fyrir því að ef sleipiefnið var notað í langan forleik þá var mér orðið full heitt… en þá er líka hægt að nota bara venjulegt sleipiefni.
Sleipiefnið smakkast líka mjög vel og þar sem vörurnar eru lífrænar þá er allt í góðu að nota það við munnmök. Ég hafði mjög gaman af því enda bragðið gott og bæði fengum við mikið út úr þessu.
Ævintýri fyrir þau sem vilja fara inn bakdyramegin
Við prófuðum líka Adventure spreyið en það er gert til þess að slaka á bakdyrunum án þess að deyfa. Spreyið tekur nokkrar mínútur til að virka en það virkar mjög vel og þetta var mikið gaman.
Nuddolíurnar frá þeim eru líka æðislegar! Það þarf ekki of mikið og það verður ekki of sleipt. Ég á lyktina Fresh Orange & Wild Ginger og hún er geðveik! Rosalega frískandi og dásamlegur ilmur sem kemur af henni.
Ég upplifði engann roða eða óþægindi eftir að hafa notað vörurnar og mæli hiklaust með þessum vörum fyrir þá sem vilja krydda kynlífið og hafa gaman af.
Þú getur fundið Intimate Organics á facebook síðu þeirra hér eða á heimasíðu þeirra hér. Tilvalið væri að gefa elskunni eina auka gjöf sem opnað verður aðeins seinna um kvöldið 😉
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.