Hér eru nokkrar forvitnilegar staðreyndir um þetta sem bætir, hressir og kætir aðeins meira en Ópal.
Vissir þú…
…að Marilyn Monroe, þekktasta kynbomba tuttugustu aldarinnar, viðurkenndi fyrir vinkonu sinni að þrátt fyrir að hafa átt þrjá eiginmenn og fjöldann allan af elskhugum, hefði hún aldrei fengið fullnægingu?
…að samkvæmt eigendum erótískra verslana er kirsuberjabragð það vinsælasta þegar keypt eru æt nærföt? Súkkulaðibragð er minnst keypt.
…að hjá aztekum til forna var avocado talið svo kynferðislega örvandi að hreinum meyjum var bannað að koma nálægt ávextinum?
…að hæsta hlutfall samkynhneigðar af spendýrum jarðar er hjá karlkyns leðurblökum?
…að skegg karlmanna vex hraðast meðan þeir stunda kynlíf?
…að fullnæging svína endist í 30 mínútur? (batnar þeim þá ekki af flensunni?)
…að læknisfræðileg rannsókn sem gerð var í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum sýndi að fólk sem stundar kynlíf einu sinni til tvisvar í viku bætir með því ónæmiskerfið?
…að kynlíf gerir konur fallegri. Vísindalegar rannsóknir sýna fram á að þegar konur stunda kynlíf framleiða þær mikið af hormóninu estrógen sem lætur hárið glansa og húðina verða mýkri?
…að kynlíf getur læknað smávægilegt þunglyndi samstundis? Það losar um endorfín út í blóðrásina og veitir þannig vellíðunartilfinningu.
…að með daglegum kossum gætir þú komist hjá því að fara eins oft til tannlæknis? Kossar örva munnvatnsframleiðsluna sem hreinsar tennurnar og lækkar sýrustigið í munninum Þannig er það vörn gegn tannsteini og holumyndun.
Og síðast en ekki síst -að kynlíf getur læknað höfuðverk?
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.