Við sátum nokkrar vinkonurnar á kaffihúsi þegar ein okkar fékk símtal. Hún þurfti að skutla vinkonu í Apótek að kaupa “neyðarpilluna” en svo kallast pillan sem kemur í veg fyrir myndun fósturvísis ef grunur leikur á um getnað.
Við fórum að spá í hvers vegna vinkonan notaði ekki smokkinn eða aðra getnaðarvörn fyrst hún vildi ekki verða ólétt. Þetta var svona “one night stand” eftir djamm kvöldið áður. Svarið var að smokkar væru dýrir og leiðinlegir… svo var hún ekki í föstu sambandi og því óþarfi að vera á pillunni … sem gerði hana hvort sem er feita. Því miður eru allt of margar ungar konur með þetta viðhorf.
Málið er að smokkar ættu að vera jafn mikilvægir í veskinu og GSM síminn ef þú ert þessi unga einhleypa sem hefur gaman af því að leika sér og langar ekki að verða ólétt … eða hvað þá fá kynsjúkdóm.
Smokkurinn kemur ekki bara í veg fyrir að þú þurfir “neyðarpilluna”, fáir kynsjúkdóm eða farir í fóstureyðingu. Hann gefur þér líka mikið betri andlega líðan eftir að hafa sofið hjá einhverjum strák sem þú varst bara að kynnast á djamminu kvöldið áður. Oft er jú mórall fylgifiskur þessháttar hegðunar.
Smokkar eru orðnir mjög þróaðir í dag. Þeir eru næfurþunnir, svo þunnir að hvorugt finnur mikið fyrir þeim. Enn betra er að nota sleipiefni með smokknum en segja má að sleipiefni sé hannað til að nota með smokkum. Sumir geta verið feimnir við að nota það og halda að þetta snúist kannski um þurrkvandamál en það er misskilningur. Sleipiefnið virkar bara á annan hátt með latexinu í smokknum en náttúrulegur raki konunnar og gerir það að verkum að kynlífið verður ánægjulegra fyrir báða aðila.
Sumar kvarta undan því að smokkar séu dýrir en neyðarpillan er mikið dýrari, það sama má segja um lyf við kynsjúkdómum eða HIV og fóstureyðing getur tekið mjög á andlegu hliðinni- svo ekki sé talað um að verða kannski ólétt eftir einhvern strák sem þú þekkir ekki neitt, kannt kannski ekki einu sinni vel við og sitja svo uppi með hann sem barnsföður það sem eftir er ævinnar.
Svo dama góð … hættu þessari vitleysu, drífðu þig nú út í Hagkaup eða næsta Apótek, splæstu í smokkapakka og smurningu og sofðu svo hjá með góðri samvisku í nótt. Þú sérð ekki eftir því!
Smelltu HÉR til að fræðast meira um smokkategundir og sleipiefni.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.