Ef tippi gætu talað myndu þau flest byrja á að biðja þig að vera svo væna að henda reglustikunni.
…Það er að segja ef þau væru þessi af kurteisari gerðinni.
Staðreyndin er sú að flestir karlmannslimir eru um það bil jafn langir þegar þeir fá það sem þeir þrá oftast mest – Athygli!
Langflestir karlar hér á vesturlöndum, eru um það bil 10 sentimetra langir þegar þeir eru slakir og í kringum 15-16 þegar þeir hressast við.
Flestar konur þurfa líffræðilega ekki á því að halda að maðurinn sé mikið stærri en þetta. Unaður kvenna tengist mikið fremur því hvort hann nái að halda sér í góðu standi og að það gerist þokkalega vandræðalaust. Þannig að… svo lengi sem hann er ekki óeðlilega smávaxinn niður og með það sem kallast ‘micropenis’ (mjög sjaldgæft) – eða er óeðlilega stór, þá skiptir stærðin enganveginn eins miklu og margir vilja af láta.
Athugaðu einnig að samkvæmt Kama Sutra eru konur líka misstórar eins og menn, þó flestar séu svipaðar… – meira um það síðar.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.