31 júlí s.l var alþjóðlegi fullnægingardagurinn og af því tilefni kom á markað splúnkunýr gullsleginn titrari frá unaðsvöruframleiðandanum Ann Summers!
Titrarinn sem hefur nafnið Lelo Inez – kostar hvorki meira né minna en 1.957.069 sé miðað við gengi dagsins í dag… Já. Tæpar tvær milljónir króna.
Tvær milljónir fyrir titrara?!
Já. 24 karata gulltitrara sem vonandi kemur til með að skjóta eigandanum í sjöunda himinn eða jafnvel lengra.
Og hvað færðu fyrir peninginn?
Jú, það tekur tvo tíma að hlaða tækið sem dugar svo í fjóra klukkutíma samfleytt. Það eru hvorki fleiri né færri en fimm gleðistillingar á þessum gleðipinna allt frá mjúku flökti yfir í ákafan slátt… og í versluninni var að sjálfssögðu sérstakur vörður sem vaktaði tækið meðan fjórir gullúðaðir karlmannskroppar (einn fyrir hverja klukkustund?) skottuðust um búðina daginn sem gripurinn var frumsýndur.
Ef þú skyldir vera í þeirri stöðu núna að hafa tæpar tvær milljónir inni á kortinu og langa í góða fullnægingu fljótlega þá er ekki annað að gera en að panta einn Lelo HÉR.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.