Það er ótal margt gott við það að eldast. Fyrir það fyrsta fá margar hömlur að fjúka og í öðru lagi vitum við alltaf betur og betur hverjar við erum, hvað okkur líkar og hvað ekki. Það sama gildir fyrir karlmenn.
Þetta gagnast auðvitað á flestum sviðum lífsins og þá ekki síst á sviði kynlífsins. Hér koma 40 hlutir sem fertugar konur hafa fengið á hreint þegar kemur að kynlífi.
1. Honum er sama hvort þú ert búin að raka eða ekki
Í alvöru, hann hefur engar áhyggjur af því. Hann er að hugsa um annað. Ef ekki þá er hann með forgangsröðina í ólagi.
2. Breidd. Ekki lengd
Þá erum við að tala um stærðina. Það er að segja ef stærðin skiptir þig máli. Ótal rannsóknir hafa sýnt og sannað að konur pæla meira í því hvernig limur er í laginu fremur en stærð hans.
3. Allar stelpurnar stunda…
…sjálfsfróun. Könnun sem var gerð árið 2004 (AARP), leiddi í ljós að meira en helmingur kvenna á aldrinum 45-49 höfðu tekið málin í eigin hendur síðasta hálfa árið á undan. Margar nota líka meira en bara hendurnar og þá eru eggin eða annarskonar titrarar vinsælastir.
4. Hann fílar að knúsast
Karlar eru alveg eins og konur hvað knúsið varðar. Bæði kynin framleiða oxytoxin hormón meðan við elskumst en það er hormónaferli sem fer af stað hjá nýbökuðum mæðrum og hjálpar þeim að tengjast börnum sinum. Einskonar tengingar og gleðihormónum. Fyrir karlmenn þýðir þetta að þeir upplifa meira traust og sterkari þörf fyrir nánd. Lestu hér hvernig má gera kynlífið nánara.
5. Það er í alvöru hægt að reikna með stærðinni út frá lengdinni á baugfingri.
Því lengri sem baugfingurinn er, því lengri er þessi í miðjunni. Þetta ræðst af testesterón magninu sem þeir fá í sig meðan þeir búa enn í móðurkviði. Ef baugfingur er jafnlangur eða minni en vísifingur, þá er maðurinn með minna magn af teststeróni. Ef baugfingurinn er hinsvegar langur, – þá veistu hverju þú átt von á góða. Með kostum og göllum. Hér er meira um stærðina.
6. Prófum!
Tilbreyting er það sem gefur lífinu gildi. Hvort sem þið prófið að gera það í rólu, á eldhúsgólfinu, í flugvél, á borðstofuborðinu, í leðurgalla eða blúndum. Ef þið eruð að prófa eitthvað nýtt þá er eitthvað að gerast.
7. Klám getur líka virkað
Það er algjör vitleysa að konur séu eitthvað seinni í gang en karlar. Og það er víst líka vitleysa að konum finnist allt klám hundleiðinlegt, skemmtilegast finnst konum víst að horfa á lesbíuklám. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í McGill háskólanum í Montreal leiddu í ljós að konur sem horfa á klám voru í 743 sekúndur að verða mjög æstar meðan það tók jafn marga karla 664.6 sekúndur. Hverjum skyldi dottið í hug að framkvæma þessa rannsókn? Og hvað var gert við niðurstöðurnar?
8. Segðu Ohhh mmmmm
Þú veist hvað maður róast niður af því að stunda jóga. Ef þú þarft á þessari andlegu ró að halda í sálarlífi þínu þá er líka um að gera að fá’ða oftar. Rannsóknir Hollenskra vísindamanna hafa leitt í ljós að það er nákvæmlega ekki neitt að gerast í konuheilanum þegar kona fær fullnægingu. EKKERT. Það þýðir engar tilfinningar og engar pælingar um barnauppeldi, sumarfrí framundan eða neitt annað. Bara ekkert. Eftir á ertu svo gersamlega sultuslök að þú brosir hringinn. Athugaðu samt að þetta er smá svona hænan og eggið dæmi. Þú getur aldrei fengið það almenninlega ef þú ert föst í heilanum á þér. Meira hér um jóga og kynlíf. Dásamleg blanda.
9. Að gera sér upp fullnægingu – tilgangslaust
Að segja honum til. Já.
10. Það verður betra ef maður er í sokkum
Ef það vantar hitann í þetta hjá ykkur þá þarftu kannski bara að fara í sokka. Þessir snillingar í Hollandi komust líka að því að það er mikið erfiðara að fá’ða ef manni er kalt á fótunum. Aðeins 50% náðu að fá fullnægingu þegar þeim var kalt á tánum en um leið og fólk var komið í sokka þá rauk talan upp í 80%. Miðaldra konur eru ekki feimnar við að skella sér í sokka til að fá þetta í gang. Og þessvegna karlinum líka.
11. Heiðarleiki: Ekki alltaf málið
Ok, þú varst eitthvað að velta því fyrir þér að prófa að halda framhjá. Kannski ertu jafnvel búin að stelast í sleik við einhvern eða kíkja í kaffi. Áttu að segja frá því til að allt gangi betur? ALLS EKKI! Það gerir bara illt vera að tappa af eigin vondu samvisku í grunlausan makann. Það mun bara láta honum líða illa og skemma traustið sem er á milli ykkar. Gleyptu bara þessa sektarkennd þína og haltu þér saman ef þú vilt að sambandið haldi áfram. Þetta ráð kemur frá þjáningarsystrum í Frakklandi og lesa má nánar um í bókinni How to be Parisian, wherever you are.
12. Ást í loftinu…
…svo lengi sem hann er ekki alltaf að úða á sig svitalyktareiði. Auðvitað fer þetta aðeins eftir lifnaðarháttum hans en það hefur löngum verið sýnt og sannað að konur æsast upp bara af því að finna lyktina af manninum sem þær eru skotnar í. Svo rólegur á sápunni góði.
13. Það er aldrei of seint
Það er hægt að koma þessu í gang. Kannski ertu týpan sem nennir aldrei að gera’ða nema á uppstigningardag og fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði. En þú veist að það er aldrei of seint að byrja að hnoða þetta hjarta (og þessar rasskinnar). Kannski þarftu að pína þig í gang en það er eins með kynlífið og ræktina. Þú byrjar, venst því og getur svo ekki án þess verið.
14. Hvað oft, hversu stór, hvað margar fullnægingar í einu
Vinkonur þínar ýkja alltaf á þriðja glasi. Engan samanburð hér.
15. Símasex? Já, já
Það er næstum eins gott og að vera á staðnum en allt of fáar konur milli 45-49 hafa prófað. Aðeins 18% kvenna á þessum aldri hafa prófað sig áfram með símasex skv könnun sem AARP lét gera árið 2004. Þetta gæti þó auðvitað hafa breyst.
16. Sjálfs er höndin hollust
Það tekur konu um það bil 4 mínútur að fá’ða ef hún tekur málin í eigin hendur en heilar 20 mínútur með forleik og samförum. Ef þér liggur á og langar mikið í þessa innri flugeldasýningu þá er bara að grípa til sinna ráða og bretta upp ermar… eða þú veist.
17. Fantasíur eru frábærar
Ef þér leiðist aðeins í bólinu skaltu bara bjóða Gerard Butler að vera með, eða George Clooney, eða Angelinu Jolie. Eða bara þeim öllum! Að tapa sér í fantasíum hjálpar svakalega til í raunveruleikanum og það er eiginlega enn meira fjör að deila nokkrum þeirra með þínum heittelskaða. ABC News gerði óformlega könnun fyrir nokkrum árum þar sem kom á daginn að yfir helmingur para deilir fantasíum hvort með öðru. Og hverjar eru algengastar? Jú, óvænt kynlíf, trekantar og kynlíf með einhverjum í vinnunni.
18. Ef þú ert of þreytt þá ertu bara of þreytt
Eitt af því sem er best við að eldast er að kynnast sjálfri sér betur og betur og segja svo það sem manni finnst, – svo lengi sem það er gert af nærgætni. Vertu blíð, segðu að þig langi frekar að horfa á House of Cards og Game of Thrones í einni lotu og hann mun skilja það. Hann er nefninlega alveg eins. Nema þetta sé vikuleg uppákoma auðvitað.
19. Stærðin skiptir hann máli
Margar rannsóknir hafa leitt í ljós að kynin eru frekar mikið í ruglinu þegar kemur að typpastærðum. 85% kvenna eru reyndar alveg sáttar við stærðina á sínum manni, (samkvæmt rannsókn sem var gerð á 50.000 gagnkynhneigðum pörum) á meðan 45% karla eru ósáttir við sinn. Konur komnar á fertugsaldur vita, að það verður að láta hann vita, að þú sért sátt við það sem guð gaf honum. Reglulega.
20. Honum er sama…
…þó þú mætir í flóneli í bólið.
21. Peningar eru ekki allt…
…en þegar kemur að kynlífi þá skipta þeir máli. Ef marka má rannsókn sem gerð var af Newcastle háskóla árið 2009 þá borgar sig að eiga kærasta eða mann sem á peninga því þær sem deila bóli með slíkum bændum eru mikið líklegri til að fá fullnægingar, og það oft. Böggull fylgir þó oftast skammrifi því áhættusæknir menn eru mikið líklegri til að halda framhjá.
22. Ef hann kann að kyssa
Þá eru bæði meiri líkur á góðu sambandi OG góðu kynlífi. Ef hann kann það ekki þá geturðu kennt honum það með því að lesa þetta fyrst.
23. Dömurnar fyrst
Það eru mikið meiri líkur á að þú sért til í að hjálpa honum eftir að þú ert búin að skreppa upp í sjöunda H-ið. Svo það gildir í þessu sem öðru: „Damerne først.”
24. Það dugar ekki að djöflast bara
Fæstar konur fá það við samfarir. Vegna þess að flestar konur fá það þegar snípurinn er örvaður og hann örvast ekki alltaf við samfarir. Láttu hann lesa þetta og þið verðið aldrei í vandræðum aftur.
25. Minna kynlíf, meiri vinna
Ef þið eruð ekki að gera það,- hvað eruð þið þá að gera? Örugglega vinna of mikið. 32.000 þáttakendur í rannsókn á vegum Gottingen háskólans í Þýskalandi sögðust sökkva sér í vinnu til að forðast kynlífs vandræði heima fyrir. Bo-RING.
26. Sýndu skoru
Alveg sama hvað við erum gamlar þá virkar það alltaf að sýna smá skoru ef maður vill láta til sín taka og taka eftir sér. Það er að minnsta kosti betra en að hafa svo hneppt upp í háls að maður er að kafna. Skoran er skemmtileg af og til… Þó ekki sé nema bara fyrir okkur sjálfar. Til að fá þessa “oh ég er æði” tilfinningu. I’ve got the power! Sjáðu til dæmis hér: Þessar eru ekkert að halda aftur af skorusýningunni.
27. Að þú sýnir frumkvæði…
…er jafn skemmtilegt fyrir ykkur bæði.
28.Það er ekki þú, það er hann
Öfugt við mýturnar þá eru karlmenn ekki alltaf til í tuskið, – og þá sérstaklega þessir sem ery orðnir miðaldra. Eftir fertugsaldurinn minnkar framleiðsla testósteróns hjá karlmönnum og það dregur úr kynhvöt þeirra. Mesta fallið er svo milli 45-50. Þannig að ef þetta tekur hann lengri tíma, eða ef hann virðist vera í minna stuði. Ekki pína hann. En plataðu hann kannski til að kíkja í mælingu til læknis.
29. Honum er sama þó þú hafir bætt aðeins á þig
Í alvöru. Og þú vilt frekar hafa hann með bumbu en sixpakk.
30. Geirvörturnar hans eru ekki alveg tilgangslausar
Sumir karlmenn hafa jafnvel meiri tilfinningu í sínum heldur en konur. Ótrúlega margir karlmenn örvast af snertingu við geirvörturnar en fæstir biðja þig um að fitla við þær.
31. Það hefur enginn áhuga
Kynlíf ykkar í smáatriðum? Nei, það er enginn að deyja úr spenningi. Síst af öllu bestu vinkonur þínar, systur eða frænkur. Milli 20-30 erum við frekar áhugasamar enda enn að læra svo margt en þegar þú ert orðin „full grown woman“ þá er þetta bara. Það þarf ekkert að ræða það eitthvað sérstaklega.
32. Dónatal er skemmtilegt
Það er gaman að tala dónalega. Það er að segja ef það er ekki vandræðalegt. Byrjaðu bara rólega, svo má alltaf bæta í.
33. Skyndikynni eru ekki fyrir alla
Kannanir hafa leitt í ljós að karlar eru mikið meira fyrir skyndikynni en konur. Hvað sem þér finnst um þau, sjáðu þá til þess að þú farir ekki yfir eigin mörk.
34. Það má!
Það sem einu sinni fékk þig til að roðna, bara við að hugsa um það… er ekkert mál þegar þú ert komin á fertugs eða fimmtugsaldur. Þú ert orðin “allt of gömul” til að eyða tímanum í bældar tilfinningar svo hömlurnar fá bara að fjúka. Nú er tíminn til að gera allt þetta sem þig hefur dreymt um en aldrei þorað. Og það eru 99% líkur á að ef þér finnst tilhugsunin skemmtileg þá finnst makanum það líka.
35. Tærnar tikka
Næst þegar þú blæst á miðjumanninn hans skaltu prófa að fara enn neðar og heilsa upp á táslurnar (að því gefnu að þær séu tandurhreinar og í góðu standi). Tær, fingur, eyrnasneplar og hálsar eru mjög örvandi svæði á bæði konum og körlum. Sjáðu hvað gerist.
36. Honum er sama þó þú sért ekki nýkomin úr baði
Hann er bara svo glaður að vera að gera’ða. Myndi þér ekki líka vera sama? (svona án þess að við séum að tala um einhverjar öfgar).
37. Þetta ert ekki þú, heldur hormónarnir
Það sama gildir fyrir okkur og strákana. Um miðjan aldur förum við aftur á gelgjuna og hormónadótið fer allt í rugl. Sem dæmi:
- Maður er endalaust á blæðingum
- Kynhvötin gufar upp
- Þú þornar eins og Sahara
- Þú sveiflast til í skapinu
… svo fátt eitt sé nefnt. Prófaðu að láta kíkja á þig og/eða lestu eins mikið og þú getur um breytingaaldurinn, mataræði og hvað er eiginlega í gangi. Það eru til allskonar leiðir til að gera sér þetta seinna gelgjuskeið auðveldara.
38. Rómantíkin er lífsseig
Það er svo gaman hvað þetta vísindafólk nennir að rannsaka. Árið 2009 komust vísindamenn við Stony Brook háskólann í Kaliforníu að því að rómantíkin og kynferðislega kemistrían í samböndum getur enst út í eitt í langtímasamböndum. Ef þér finnst ástríðuna sem oft er að finna í upphafi, eða stuttum samböndum vanta, þá er það bara gott. Þá þýðir það að þið eruð líka laus við óöryggið og kvíðann sem fylgir fyrstu stigunum.
39. Giftu þig og gerðu það oftar.
Þetta finnst kannski sumum ótrúlegt en miðaldra fólk sem er gift, gerir það mikið oftar en einhleypir jafnaldrar þeira. Það er samt ekkert verið að sprengja neina skala. Verum alveg róleg. Gift fólk gerir það að meðaltali 69 sinnum á ári (vúhú)…. en það er samt alveg níu sinnum oftar en einhleypa fólkið. Mundu bara að tíðni og gæði fara ekki alltaf saman. Betra sjaldnar og vel en oft og illa.
40. Honum finnst þú æsandi… eins og þú ert
Ef þú átt í vandræðum með þetta… lestu þá hér.
Að lokum skaltu kíkja á þessar bombur. Allar á fimmtugsaldri og allar hrikalega sexý og flottar. Mundu að þetta er bara rétt að byrja! 😉
[heimild: womenshealth.com]
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.