Er sambandið orðið að einum STÓRUM vana? Vantar alla spennu? Langar þig að finna aftur fiðrildin í maganum þegar þú hugsar um makann þinn?
Þá skaltu lesa vel…
1. HEIMA
Byrjaðu á því að kaupa þér ný föt, fallegan kjól til dæmis og unaðslega falleg undirföt. (Það er ótrúlegt en satt að þegar við erum komnar í falleg undirföt þá líður okkur fallega).
Sendu spennandi og kynæsandi sms til maka þíns og komdu honum á óvart. Ímyndaðu þér að þú sért að hitta hann í fyrsta skipti og engin börn, vinna, fjölskylda eða vinir séu fyrir ykkur. Bara þið!
Kveiktu á kertum áður en hann kemur heim. Það er allt í lagi að vera smá ‘korní’ og skella litlum kertaljósum á gólfið þannig að hann rati beint inn í svefnherbergi þegar hann labbar inn úr dyrunum. Vertu tilbúin í nýju undirfötunum upp í rúmi og brostu til hans. Hafðu tilbúna nuddolíu og komdu honum á óvart með stórkostlegum nuddhæfileikum þínum (þó það séu bara strokur upp og niður líkamann…hann mun njóta sín vel).
Hugsaðu um það sem þig langar til að gera í kynlífinu og láttu hann vita hvað það er (þeir vita ekkert alltaf hvað það er sem við viljum og best er að segja það beint út, það er það eina sem þeir skilja). Þú verður ekki fyrir vonbrigðum með framhaldið!
2. HELGIN
Skipuleggðu rómantíska ferð fyrir ykkur tvö á hótelherbergi í bænum eða út úr bænum, til dæmis í bústað. Rómantískar ferðir klikka ekki. Matur og lúxus á ókunnugum stað gerir kraftaverk fyrir samveruna. Munið bara að tala ekki um nein vandamál og alls ekki um börnin eða forelda ykkar. Best er að bæði ímyndi sér að þau séu að hittast í fyrsta skipti. Þá koma kannski allt í einu spurningar sem hafa aldrei kviknað áður og þið kynnist bara betur og betur.
3. BLÁA LÓNIÐ
Ferð í Bláa lónið er afslappandi og í senn svolítið örvandi. Farið í lónið og njótið lífsins. Pantið ykkur nudd og slakið vel á. Á eftir er hægt að fá sér að borða og daðra við hvort annað yfir rauðvínsglasi. Mjög sæt leið til að kynda upp áður en haldið er heim…
4. BÍLLINN
…nú eða keyra eitthvað afsíðis og taka æfingar í bílnum. Nóg er af stöðum til að stoppa á og ég lofa því að það verður spennandi og æsandi því þetta er svona eitthvað sem “má ekki”. Fólk gæti séð ykkur og sú hugsun getur verið mjög æsandi.
5. LEIKIÐ YKKUR
Takið ykkur tíma fyrir hvort annað einu sinni í viku. Farið að læra dans saman, í badmington saman, skjóta pool eða hvað sem er… bara þið tvö í klukkutíma á viku. Komið börnunum fyrir og hafið þennan sérstaka tíma bara fyrir ykkur. Þessar stundir gera kraftaverk, binda ykkur saman, leyfa ykkur að vera bara þið tvö og þið hafið gott af því að hlæja saman og fíflast.
Aðalatriðið er að njóta lífsins. Njóta hvors annars og vera til! Mundu að þú varðst ástfangin af þessum manni og þið getið aftur átt saman skemmtilega tíma saman! Það þarf bara að framkvæma hlutina.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.