Ég elska Kylie og finnst hún svöl lítil kisulóra en síðasti diskur hennar, A
phrodite, kom í búðir 5 júlí…
Í auglýsingaherferðinni fyrir diskinn hefur verið sent út kynningarplakat þar lítur Kylie út eins og hún sé að auglýsa -ilmvatn sem er mjög spes.
Einnig þótti mér Kylie ekkert lík sjálfri sér en þar setur hún sig í stellingar gyðjunnar Afrodítu.
En víkjum okkur að myndbandinu; hvítt og svart eru aðallitirnir í “All the lovers”.
Kylie er klædd hvítu með hvítt naglalakk á fingrum og förðuð með hvítum augnskugga hvítt er greinilega inn í sumar -Kylie er flott og í fantaformi en hún hélt upp á 42 ára afmælið sitt þann 28 maí.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.