Kendall Jenner segir systur sína vera mesta sóða sem hún hefur kynnst og að hún eigi í mestu vandræðum með að halda herberginu sínu hreinu.
Hún segir líka að systir sín kunni ekki að fara vel með eigur annara.
Í viðtali við tímaritið DuJour magazine, sagði hún: “Kylie er algjör sóði. Hún er mesta drusla í heimi og henni er bara alveg sama.”
“Hún kemur og gistir hjá mér eian nótt og þegar ég fer í gestaherbergið næsta dag er það gersamlega á hvolfi.”
Systurnar sætu hafa komið fram í Kardashian þáttunum síðustu sex ár. Þær segja frægðina hafa valdið þeim talsverðum kvíða sem þær reyna að ráða bót á.
“Ég er ótrúlega kvíðin,” segir Kyle sem er 16 ára. “Mér finnst eins og það séu allir alltaf að horfa á mig. Ég er farin að hegða mér furðulega innan um fólk.”
Kendall bætti við: “Það er erfitt að ýminda sér hvernig þetta verður þegar það slokknar á myndavélunum. Þær eru það eina sem við þekkjum. Svona er líf okkar. Ég sé samt ekki fram á að við viljum losna við þær, eftir allt þá er þetta sannarlega ekki versta starf í heimi.”
Það er nefninlega það. Frægðarlífið er ekki tekið út með sældinni en það er ekki þar með sagt að þær vilji sleppa því sem fylgir með ölllu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.