Hún hefur alist upp við blindandi flöss papparazzi ljósmyndaranna og því er ekki undarlegt að Kylie Jenner sé öllu vön þegar kemur að myndatökum.
Með tilkomu nýrra samfélagsmiðla eru yngstu systur þessarar feykivinsælu fjölskyldu að ná yfirhöndinni í vinsældum en Kylie Jenner fer þar framarlega í flokki og það er sama hvað hún gerir, allt slær í gegn.
Fólk bara hreinlega dýrkar þessa ýturvöxnu skvísu.
Kylie Jenner er nú með tæplega 39 milljón fylgjendur á snjallsímaforritun Instagram og birtir þar reglulega myndir af sér í ólíkum dressum að gera ólíka hluti. 39 milljónir fylgjenda. Er ekki verið að grínast!??
Aðeins stóra systir hennar er með fleiri fylgjendur en Taylor Swift trónir á toppnum sem vinsælasti Instagram notandinn enda ein vinsælasta og áhrifamesta stjarna ársins. Metin á fleiri hundruð milljarða. Spurning hvort Kylie skákar henni ekki bara fljótlega. Hlutirnir eru að minnsta kosti að gerast ansi hratt hjá henni þessa dagana.
Allir sem eru sexý réttupp’hend
Kylie birti nýlega af sér myndir í nýjum æfingafötum frá Superdry en breska tískumerkið hefur verið að slá í gegn í Hollywood og margar stjörnurnar þar hafa sést í merkinu, aðallega þessi sem eru hvað kynþokkafyllst…
Má þar nefna Brat Pitt, Bradley Cooper, David Beckham og breska leikarann Idris Alba, sem margir veðja á að gæti orðið næsti James Bond enda alveg sjóðandi heitur. Það má svo alveg deila um hvort Casper Chistensen úr Klovn sé sexý en hann er samt oft í fötum frá Superdry. Var meðal annars vel dressaður í fötum frá Superdry heimsókn sinni hingað til lands á dögunum.
Superdry opnar í Smáralind
Superdry opnaði einmitt verslun í Smáralind á dögunum, sem er fyrsta verslun breska tískumerkisins á Íslandi. Þetta er bara skemmtilegt því á síðustu tískuviku í London var Superdry kallað „tískumerkið sem stjörnurnar elska” – og það á viðráðanlegu verði.
Nýlega kom á markaðinn sportlína frá merkinu og hefur hún meðal annars verið kosin af bresku ritstjórn Vogue sem besta sportlínan auk þess sem fleiri frægar og vinsælar stjörnur hafa sést spóka sig um í línunni, bæði á æfingum og hversdags.
Þetta finnst okkur skemmtilegt. Superdry er vönduð vara sem er alveg þess virði að tékka á… enda gerum við allt eins og stjörnurnar 😉 ! Nú er að húrra sér upp í Smáralind.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.