Hin íðilfagra og forríka unglingsstúlka Kylie Jenner varð 18 ára í gær og að sjálfssögðu hélt þessi ljónadama almenninlega veilsu eins og ljónum sæmir.
Gjafirnar hennar voru heldur ekki af verri endanum og það sem toppaði allt var pakkinn frá kærastanum Tyga… Hann gaf skvísunni sinni nefninlega Ferrari í afmælisgjöf. Minna mátti það nú ekki vera.
Bíll sem þessi kostar að minnsta kosti 45 milljónir íslenskra króna sem segir okkur að það er ekkert normalt við það að vera unglingurinn Kylie.
Hún brást við með því að gráta krúttlegum gleðitárum þegar hún sá bílinn, – hver myndi ekki gera það?
Kylie stefnir í það að verða ansi glæsileg ung kona en þær systurnar Kendall og Kylie hafa alla tíð alist upp í sviðsljósinu og segja má að þær séu hreinlega með glimmerblóð í æðum enda ekta Hollywood stelpur á 21. öld.
Eldri systirin Kendall hefur einbeitt sér að því að koma fram sem fyrirsæta en margir eru á því máli að hún sé orðin nokkuð rýr í takt við það sem tíðkast í þeim bransa.
Holdafar og kynhneigðir Kardashian fjölskyldunnar hafa alltaf verið ofarlega í hugum slúðurfréttaritara þar vestra enda sveiflast hvorutveggja til eins og hárið á Kim á góðum degi.
Allar systurnar ákváðu að láta sjást í bert þegar þær völdu sér föt fyrir kvöldið enda nokkuð heitt í Hollywood í ágústmánuði.
Yfir það heila þykir veislan hafa heppnast vel enda ekkert annað í stöðunni þegar þú ert eðalborinn Hollywood unglingur.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.