Leikkonan Kristen Bell eignaðist sitt fyrsta barn fyrir um þremur mánuðum og segir að hún ætli ekki að taka þátt í þessu rugli að missa sem flest kíló eftir meðgöngu.
Já, Kristen segir hingað og ekki lengra þegar kemur að því að missa síðustu kílóin. Leikkonan bætti töluvert á sig á meðgöngunni og hún tekur aukakílóunum sínum fagnandi og finnst þau vera viss áfangi út af fyrir sig. Henni finnst hún virkilega hafa áorkað einhverju með því að vera ólétt og hvað með það þó hún hafi bætt aðeins á sig.
Hún segir þó að hana langi að sjálfsögðu að komast aftur í sitt gamla form þegar kroppurinn var upp á sitt besta en ef líkaminn vinnur ekki með henni í þeim málum þá verður það bara að vera þannig, líkaminn tekur breytingum eftir barnsburð – Hún tekur þeim breytingum fagnandi og liggur ekkert á að missa blessuðu barnakílóin.
Kristen segir einnig að unnusta hennar, leikaranum Dax Sheperd, hafi fundist hún vera afar kynæsandi með nokkur aukakíló utan á sér og hann hafi beðið hana að vera pínu mjúk fyrir sig og ekki of horuð!
Kristen segir þó að það hafi tekið hana smá stund að átta sig á því að líkaminn myndi ekki poppa aftur í sitt gamla form eftir fæðingu og þegar hún hafi sætt sig við það þá leið henni miklu betur, þetta er einfaldlega eitthvað sem hún ræður ekki við og getur ekki breytt á núll einni.
Það er óhætt að segja að þetta er skemmtilegt viðhorf hjá leikkonunni og ég get ekki séð að hún sé allt of mikið búttuð eftir barnsburðinn!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig