Momagerinn Kris Jenner virðist yngjast með hverju árinu sem líður, hún er alltaf dressuð upp á tíu og fer sjaldan út úr húsi nema máluð og með hárið vel blásið.
Kris virðist oftar en ekki vera í samkeppni við sínar frægu dætur og er alltaf að reyna að halda í við þær og stundum tekst henni jafnvel það vel til að hún telst vera betur klædd en þær. Kim, Kourtney og Khloé finnst mamma sín ganga oft fulllangt í því að reyna að vera yngri en hún er og skilja ekkert í þessari fortíðarþrá hennar.
Kris hefur farið í lýtaaðgerðir og ekki farið leynt með það. Hún hefur látið lyfta og laga brjóst sín og fyrir brúðkaupið hjá Kim þá fór hún í “létta” andlitslyftingu og létt lappa uppá sig. Bæði hún og Bruce eiginmaður hennar hafa reyndar farið í andlitslyftingu en það verður að segjast að lýtaaðgerð Kris sé mun betur heppnuð heldur en aðgerðin hjá Bruce.
Pjattið fjallaði um andlitslyftingar á dögunum þú getur lesið nánar um það hér en aðgerðir af þessu tagi er eitthvað sem íhuga þarf vel og vandlega áður en lagst er undir hnífinn.
Eins og sjá má á myndunum hér fyrir ofan er lítil breyting á andliti Kris á síðastliðnum þrjátíu árum en það verður þó að segjast að fatasmekkurinn hennar hefur batnað.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig