Scott Disick kærasti Kourtney birti í gær mynd af henni þar sem hún var að lyfta upp peysunni sinni þannig að það sást á magann og brjóstahaldarann.
Scott skrifaði við myndina; “Hún lítur út eins og engill” og margir vilja meina að hann sé að ýja að því að Kourtney sé orðin ólétt af þeirra þriðja barni en Kourtney hefur ekki farið leynt með það að hana langi í fleiri börn. Fyrir eiga þau tvö börn, Mason og Penelope.
Kannski er Scott að reyna að fá aðdáendur aftur á sitt band með þessari mynd því í einum þætti af “Keeping Up With The Kardashians” sagði Scott að hann hefði orðið ástfanginn af Kourtney þegar hún var grönn og kysi mun frekar að hafa hana horaða heldur en búttaða en þetta var stuttu eftir að hún hafði eignast þeirra seinna barn!
Kourtney lá mikið á að koma sér í form eftir að hún eignaðist son þeirra Mason. Hún lenti meðal annars í því að ofþorna og það leið yfir hana þegar hún var að hlaupa á ströndinni. Í þetta sinn ákvað Kourtney að vera ekkert að stressa sig á því að missa kílóin strax, ákvað að fara heilbrigðu leiðina og missa kílóin jafnt og þétt.
Margir urðu brjálaðir eftir ummæli Scott í þættinum þegar hann vildi að Kourtney myndi grenna sig svona mikið aftur og þá Twittaði Scott; “Ég áttaði mig ekki á því hversu reitt fólk verður þegar maður talar um þyngd annara”.
Ætli Kourtney sé ólétt? Í nýjasta þættinum af KUWTKD segist hún vilja eignast þriðja barnið til að geta borðað fylgjuna, kannski er þetta bara Scott að sýna að hann elski konuna sína með þessari mynd? Hmmm….
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig