Slúðurpésar og smjattarar eru sammála um það að Kourtney Kardashian sé nú ólétt af sínu þriðja barni.
Kourtney á að hafa sagt sínum allra nánustu frá þessu og ekki getað haldið þessum gleðifregnum lengi leyndum en þau Scott eru víst búin að vera að reyna að verða ólétt nánast frá því að Penelope litla fæddist því Kourtney vildi að það væri stutt á milli þeirra tveggja. Einnig vildi Kourtney ólm fá leikfélaga fyrir litlu frænku sína North West sem er dóttir þeirra Kim og Kanye.
Kourtney hefur verið að sækja hinar ýmsu samkomur undanfarið en ekki fengið sér dropa af áfengi á meðan hún djammar, hún elskar Sushi en hefur ekki smakkað á því og það þykir ýta undir sögusagnirnar. Einnig hefur mörgum þótt hún vera þreytuleg og með meiri maga en venjulega.
Samband Kourtney og Scott hefur verið stormasamt á köflum og Scott greyinu finnst hann oft vera “barnamaskína” fyrir Kourtney en hún fókuserar aðallega á börnin og finnst Scott ekki gera neitt til þess að hjálpa sér.
Það er ekki alltaf dans á rósum að vera foreldrar og reyna að halda rómantíkinni á lofti, en ætli Kourtney sé ólétt og North West fái leikfélaga?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig