Kourtney Kardashian er í fríi með fjölskyldu sinni á Miami og sundfataval Kourtney fyrir Penelope litlu á virtist fara eitthvað fyrir brjóstið á almenningi.
Málið er nefnilega það að litla daman er í svokölluðu bandabikiní með hlébarðamunstri og mörgum fannst það alls ekki viðeigandi klæðnaður fyrir ungabarn að vera spóka sig um í lauginni eða á sundlaugarbakkanum.
Twittararnir fóru á fullt og sögðu meðal annars að það væri ömurlegt að setja lítið barn í svona sundföt, aðrir sögðu að eins árs gamalt barn ætti alls ekki að vera í svona fatnaði með hlébarðamunstri á meðan öðrum fannst þetta það flottasta í heimi.
Kourtney og kærastinn hennar Scott virtust samt sem áður skemmta sér konunglega ásamt börnunum sínum Mason og Penelope, kannski eru þau bara að reyna að fá fólk til að skrifa um sig en ekki Kim, nei segi bara svona?
Hvað finnst þér, er þetta viðeigandi eða frekar skrítið alltsaman? Förum yfir það á Facebook.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig