Það er aldrei lognmolla í kringum Kardashian fjölskylduna og nýjasta útspilið er að karlmódel að nafni Michael Girgenti segist vera faðir Mason, eldri sonar hennar.
Michael segir þau Kourtney hafa kynnst þegar þau voru við tökur á myndaþætti fyrir tímaritið 944 í apríl 2008. Í mars árið 2009 hafi þau síðan sofið saman þegar hún og Scott áttu í erfiðleikum í sambandi sínu og níu mánuðum seinna fæddist Mason.
Kourtney neitar þessu staðfastlega og segir að hún hafi aldrei verið með Michael og segir að Scott sé faðir Mason en hún og Scott hafa átt í stormasömu sambandi í mörg ár.
Michael heimtar DNA próf til þess að rétt faðerni komi í ljós og þá ætlar hann að eigin sögn standa sig ef hann reynist vera faðir Mason. Hann segir að Mason eigi það skilið að vita hver rétti faðir hans sé.
Sama ár og Kourtney var ólétt, eða árið 2009, þá vildi Michael fá DNA próf til þess að fá að vita hvort hann væri faðir barnsins en allt kom fyrir ekkert og Kourtney segir að Scott sé faðir Mason og enginn annar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig