Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að hertogaynjan af Cambridge sjálf Kate Middleton gengur með fyrsta barn þeirra Vilhjálms prins.
Nú hefur verið gefin út tilkynning frá konunglegu hirðinni og hljóðar hún svo:
“Þau konunglegu hátign, hertoginn og hertogaynjan af Cambridge eru glöð að tilkynna og staðfesta að von er á barni þeirra í júlí. Heilsu hertogaynjunnar heldur áfram að fara batnandi frá því að hún kom heim af spítalanum í síðasta mánuði”.
Eins og segir í tilkynningunni fer heilsu Katrínar batnandi en orðrómur hefur verið á kreiki að þau eigi von á tvíburum en þegar hertogaynjan fór í tólf vikna sónar þá kom eitt barn í ljós en ekki tvö.
Katrín er komin fjórtán vikur á leið núna og eru hjónin mjög spennt yfir komu erfingja síns.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig