Hertogaynjan af Cambridge sjálf Kate Middleton er komin heim af spítalanum eftir átökin við morgunógleðina en hún útskrifaðist í gær.
Að sjálfsögðu var gríðarlegt fjölmiðlafár í kringum heimkomuna og hertogaynjan glæsileg í blárri köflóttri kápu, með ljósbláan trefil og í háum stígvélum.
Fatnaðurinn sem Kate klæddist er að sjálfsögðu kominn í heimspressuna og dömur í Bretlandi voru ekki lengi að finna út hvaðan fatnaðurinn kæmi. Núna eru kápan og stígvélin uppseld!
Kate er greinilega “trendsetterinn” í dag og virðist allt sem hún klæðist og kemur fram opinberlega í seljast upp. Kate er þó þekkt fyrir það að koma fram opinberlega í sama fatnaðinum tvisvar sinnum eða oftar og hefur hún fengið mikla gagnrýni tískulöggunnar fyrir það. Hún er einnig dugleg að ganga í ódýrum fatnaði sem er ekki endilega merkjafatnaður.
Mér persónulega finnst það flott hjá henni, til hvers að kaupa flík sem á bara að vera einnota?! Hún sýnir einnig gott fordæmi og er ekki að eyða endalaust af peningum (eða að láta hönnuði) vera að eyða endalaust í sig.
Jarðbundin og skynsöm hertogaynja sem er komin heim og mun taka því rólega á næstunni. Skoðaðu myndagallerí af Kate og William fyrir utan spítalann hér að neðan.
________________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig