Harrý bretaprins (28) á ekki gott með að halda aftur af sé ef marka má vini hans sem segja hann hafa uppljóstrað kyni barnsins sem mágkona hans ber undir belti.
“Harry er búinn að vera að segja öllum að hún eigi von á strák. Hann getur ekki beðið eftir því að fá litla frændann í heiminn og segir að Katrínu hafi líka alltaf langað að fyrsta barnið hennar yrði strákur,” ef haft eftir innanbúðarmanni að Harry hafi sagt.
“Þau eru á fullu að reyna að finna rétta nafnið og líklegast er það komið en þau munu ekki segja neinum neitt um það, – ekki einu sinni Harry sem er auðvitað alltaf að koma með hræðilegar uppástungur og stríða þeim. Allir sem tengjast fjölskyldunni nánum böndum vita samt að þetta er strákur núna og það er búið að kaupa mjög mikið af allskonar bláum leikföngum handa honum.”
Það var í mars síðastliðnum sem Katrín (31) vakti upp grunsemdir um að nú væri stelpa á leiðinni þegar hún fór í opinbera heimsókn til Grimsby. Þar fékk hún bangsa að gjöf frá aðdáanda og á Kate að hafa svarað eitthvað á þessa leið… “Takk kærlega, ég þigg þetta fyrir d… fyrir barnið.”
En þó að mikið sé spáð og spekúlerað og ýmsu haldið fram hafa hjónin ekki staðfest neitt enn sem komið er. Þau hafa bara gaman af því að fjölmiðlar velti vöngum yfir þessu meðan breskir aðdáendur (og fleiri) bíða spenntir eftir því að litli ríkisarfinn líti dagsins ljós.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.