Georg litli hefur fengið sína aðra frumsýningu en í gær voru birtar fyrstu myndirnar af honum, Kate og William eftir að þau komu heim af spítalanum.
Það var enginn annar en faðir Kate, Michael Middleton sem tók myndirnar og þær bera þess merki enda bæði innilegar og afslappaðar. Fjölskylduhundurinn Lupo fékk einnig að vera með á nokkrum myndum með lafandi tungu og alsæll með lífið.
Georg litli er víst afar ákveðinn ungur maður að sögn Williams, myndarlegur eins og mamman og finnst fátt betra en að láta dekra við sig.
Skemmtileg og krúttleg myndataka af þessari fallegu fjölskyldu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig