Fyrirsætan Sarah Stage sem pirraði heiminn með því að birta myndir af sér óléttri með sixpakk og ofurtónaðan líkama er búin að eiga.
Daman fæddi heilbrigðan og fallegan dreng í dag, 15.apríl, en skvís bætti aðeins 9 kílóum á sig á meðgöngunni. Drengurinn hefur fengið nafnið James Hunter en hann var um 4 kíló þegar hann fæddist.
Fáar konur hafa valdið jafn miklum usla með óléttumyndum af sér en Sarah hristi aldeilis upp í mannskapnum þegar hún setti mynd af sér á Instagram, komin 9 mánuði á leið. Á myndinni lítur hún út eins og við þessar venjulegu eftir bjór og pizzu. Alls ekki eins og kona sem er komin 9 mánuði á leið.
Það varð allt vitlaust.
Í kjölfarið reyndi Sarah að bæta fyrir “brot sitt” með því að birta myndir af sér á hamborgarastað að skella í sig hamborgara og frönskum, hún tók meira að segja mjög djúsi myndir af hamborgurum til að “sanna” að hún væri nú ekkert afbrigðileg.
Í viðtali við Good Morning America hélt hún samt alveg kúlinu og virtist ekki láta reiðar kynsystur sínar hagga sér. „Það eina sem mér finnst skipta máli er að barnið sé heilbrigt. Það er aðal málið,” sagði daman.
Hér er Sarah á Instagram. Merkilega nett á meðgöngunni. Það verður áhugavert að sjá hvernig pósurnar hennar þróast eftir að barnið kemur í heiminn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.