Þegar ég hef reynt að skreyta köku fallega með sprautustútum og smjörkremi hefur það vanalega misheppnast alveg hræðilega hjá mér!
Oft hef ég þó reynt.
Fullkomnunaráráttan í mér hreinlega höndlar ekki skakkar og illa sprautaðar kökur. Það er sem sagt ástæðan fyrir því að þið munuð aldrei fá uppskrift af fullkomlega sprautuðum smjörkremsbombum frá mér!
Mér þykir þó alveg rosalega gaman að búa mér til góða köku og skemmtilegast þegar ég næ að hafa útlitið á kökunni í samræmi við bragðið. Gott bragð af fallegri köku.
Ég fór að leita að hugmyndum af þeirri fullkomnu ófullkomnu köku sem þarf enga sprautustúta til að gera.
Ég ætla að deila mér ykkur myndum sem ég fann, ef svo skyldi vera að einhver þarna úti sé jafn lélegur og ég með sprautustútana! Þær eru bæði fallegar og girnilegar þessar.
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com