Hérna “back in the day” þegar mætt var í barnaafmæli tóku á móti manni drekkhlaðin borð af brauðtertum, lagkökum, súkkulaðikökum og ýmiskonar hnallþórum…
Útlitið var ekki aðalatriðið á þessum tíma, stöku súkkulaðispænir og skrautsykur litu út fyrir að hafa í ráðaleysi villst inn á kökurnar á meðan rækjur og vínber ýttu undir fegurðarstaðalinn í brauðtertubransanum… En það var allt í lagi- allt var þetta (og er enn) lostæti með það að markmiði að metta mannskapinn!!!
Svo var það fyrir nokkrum árum að amerískra áhrifa fór að gæta í eldhúsum Íslands og með tilkomu sykurmassa, smjörkrems, matarlita og samkurli þessara faktora fóru að ryðja sér til rúms kökur og tertur sem hin íslenska meðalhúsmóðir hafði hingað til aðeins séð í Amerískum bíómyndum.
Metnaðurinn rauk upp úr öllu valdi og nú eru terturnar ekki bara guðdómlega gómsætar, heldur svo óumdeilanlega fallegar að maður tímir varla að skera í þær, algjör listaverk!
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá tveimur íslenskum kökulistakonum sem láta heldur betur ekki hæðast að sér þegar kemur að bakstri. Báðar eru þær með síður á feisbúkk; Kakan mín og Kökurnar mínar og báðar eru þær afburðalistamenn!
Hrafnhildur, eða Krummi, er mamma, förðunarfræðingur, leikkona, kærasta, systir, dóttir, handverkskona og listakona svo fátt eitt sé nefnt. Ung flutti hún frá Sauðárkróki til Reykjavíkur þar sem hún lærði förðunarfræði en seinna flutti hún til Alabama, USA þar sem hún lærði leiklist. Eftir nokkur ár í Bandaríkjunum lá leið hennar aftur til Sauðárkróks og hún er því rödd landsbyggðarinnar á meðan pjattrófa. Hrafnhildur er fædd 21. febrúar árið 1980 og er fiskur.