Nú bítur frostið kinnarnar og okkur finnst mörgum best að vera bara inni að hlusta á jólalögin og dunda…
Hvað er þá betra en að blanda sér ljúfan kokteil og láta sem maður sé allt í einu komin í jólaösina á Manhattan, jafnvel í happy hour á einhverjum góðum bar með fallegu útsýni yfir Central Park?
Manhattan er einhver klassískasti kokteill sem völ er á enda hefur hann prýtt kokteilseðla helstu veitingastaða heims síðan hann vann sér fyrst inn vinsældir á Manhattan klúbbnum í New York fyrir meira en 100 árum, eða árið 1870.
4 cl. viskí
2 cl. rauður vermouth
Skvetta Angostura bitter
Hrært saman í klaka, sett í kokteilglas eða gamaldags kampavínsglas og skreytt með appelsínu eða sítrónusneið, kirsuberi ef þú tekur klassíkina alla leið.
Skál í boðinu darlings!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.