Hin ofursæta Rihanna er þekkt fyrir að hafa sinn sérstaka stíl sem getur oft verið ansi svalur. Hér er hún í níðþröngum, klórslettum gallabuxum en þetta getur þú sjálf gert við gamlar gallabuxur.
…þú vindur upp á gallabuxurnar, hnýtir jafnvel hnút á skálmarnar og skellir þessu svo í fötu með klórblöndu. Bíddu í nokkra tíma, settu svo buxurnar vel skolaðar í þvott og voilá…þú átt tie-die gallabuxur eins og Rihanna.
WILD THING: Hér er samsetning í anda Riri. Svipaðar flíkur er að finna m.a. í Zöru og Top Shop en hvar púfferma-leðurjakkinn með keðjunni fæst veit ég ekki. Væri vel til í einn svona. Hann er gordjöss!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.