Maxi kjólarnir hafa tröllriðið tískuheiminum uppá síðkastið en mér finnst þetta flott og elegant trend.
Kjóll vikunnar sameinar tvö flott trend Maxi og tribal mynstrið sem ég fjallaði um hér á blogginu fyrir stuttu.
Kjóllinn fæst á síðunni www.boohoo.com – síðan sendir reyndar ekki til Íslands (hvað er málið með það alltaf?) en við þekkjum flestar einhvern sem býr í öðru landi og getur sent okkur.
Ég elska litina og mynstrið í kjólnum og væri mega til í hann fyrir sumarið.
Kjóllinn er ódýr – Hann kostar um 5000 kr.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.