Kjóll vikunnar þessa vikuna er þessi fallegi bleiki kjóll. Mér finnst hann ótrúlega flottur, hann er bæði fágaður og stelpulegur og jafnvel kynþokkafullur líka.
Kjóllinn er svolítið í anda Jackie O, hún hefði verið fabjúlus í honum! Hann er úr 100% silki, kostar um 15.000 kr íslenskar og þú getur keypt hann HÉR!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.