Þessi fallegi kjóll er úr smiðju Balmain og eins og allt sem þeir hanna kostar hann meira en ég hefði getað ímyndað mér að venjulegur svartur kjóll gæti kostað.
Þrátt fyrir að vera ofboðslega fallegur og einstaklega fullkominn í sniðinu held ég að miljón sé of mikið fyrir einn kjól!
Já þessi kjóll kostar MILLJÓN! (eða réttar er sagt 926.888 kr.)
Kjóllinn er úr rússkinni með axlar-detail, sylgjum á hliðinni og fallegu hálsmáli.
Hverrar krónu virði? Tjaa ég veit ekki. En smart er þó kjóllinn.
Ef þú hafðir hugsað þér að splæsa í herlegheitin þá fæst þessi kjóll HÉR.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.