Eitt af því sem vekur einna mest umtal í kringum Óskarshátíðina er það hvernig stjörnurnar munu verða klæddar á rauða dreglinum fyrir utan Dolby Digital Theatre og árið í ár er þar engin undantekning.
Eins virt verðlaun og Óskarinn eru þá eiga því miður fleiri eftir að muna eftir tískuslysunum eða sigrunum, eða því að Jennifer Lawrence datt í tröppunum á leiðinni upp á svið, heldur en þeim sem voru tilnefndir eða jafnvel unnu þetta kvöld.
Hér að neðan má sjá myndir af kjólunum og jakkafötunum sem stjörnurnar voru í á rauða dreglinum fyrir hátíðina:
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.