Kitten Kay Sera ELSKAR bleika litinn! Það gera að vísu margar aðrar stelpur og konur allstaðar í heiminum…
…en það sem gerir Kitten Kay Sera svona sérstaka er það að hún er með algjöra þrjáhyggju fyrir bleika litnum. Nánast allt sem hún á er með bleikum lit. Bleik föt, bleik húsgögn og jafnvel hundurinn er bleikur!
Kitten er 46 ára leikkona frá Los Angeles og hefur gælunafnið ” The Pink Lady” enda orðin velþekkt þarna vestan hafs. Hún hefur komið fram í nánast hverjum einasta spjallþætti síðustu árin og þá yfirleitt með hundinn sinn Kisses með í för. Eins og ég sagði áður þá eru nánast allar hennar eigur bleikar á litinn en henni finnst það ekkert furðuleg árátta, segist einfaldlega dragast að bleika litnum eins og segull að ísskáp.
Fataskápur hennar hefur mörg afbrigði af bleika litnum og marga mismunandi stíla en til að krydda fataúrvalið hefur hún brugðið á það ráð að eiga bleik föt í hinum ýmsum stílum. Til dæmis kúrekastíl, bleikum pönk stíl, bleikum rokkstíl og ekki má gleyma bleika glamúr stílnum en það er sá stíll sem hún er hrifnust af en daman hefur klæðst bleikum fötum síðustu 25 árin.
Hundurinn hennar Kisses er hvítur að lit en til að fá hann svona fagur bleikan þá baðar hún hann upp úr vatni með rauðrófum í. Þannig verður feldur hans svona bleikur og fínn. Allt mjög eðlilegt að hennar mati.
Kitten tekur ástríðu sína fyrir bleika litnum mjög alvarlega og fer í sínum bleika fatnaði jafnvel í jarðafarir ( venjan í Los Angeles er að fólk klæðist eingöngu svörtum fötum við jarðafarir). Eins hefur hún hætt með karlmönnum sem eru litblindir, því þeir verða jú að minnsta kosti að sjá þennan fallega lit að hennar mati, annars geta þeir farið eitthvað annað!
Hún segist vera afar hamingjusöm og lifa lífinu glöð og kát. Hún hreinlega elskar þegar ókunnugt fólk stoppar hana úti á götu til að gefa henni bleika trefla, skartgripi og annað sem fólk veit að hún á eftir að njóta.
Kitten er með facebook síðu þar sem aðdáendur hennar geta fylgst með henni, sjá hér Svo verð ég að láta myndband af henni syngjandi fylgja með. Dásamlega sæt súrt myndband þar sem hún syngur lagið Sex kitten, – bleikur hressleiki út í gegn!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_7z0bWMORRs[/youtube]
Ef allir væru jafn hamingjusamir og hún Kitten væri lífið þá ekki ein stór bleik hamingja? Það er ekki að ástæðulausu sem talað er um þetta bleika ský.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.