Loksins, loksins, LOKSINS eru Kim og Kanye gengin í það heilaga og virðast vera hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.
Þetta er þriðja hjónaband Kim og eins og þeir segja í USA “third time´s a charm”, við skulum allavega vona að þau verði hamingjusöm til æviloka eins og í sönnu prinsessuævintýri.
Einhverjar fjölskylduerjur áttu sér þó stað fyrir og eftir brúðkaupið en Rob litli bróðir Kim ákvað að yfirgefa París áður en brúðkaupið byrjaði en honum fannst allt þetta húllumhæ í kringum brúðkaupið vera komið út í vitleysu og fannst peningaeyðsla systur sinnar vera komin langt yfir öll velsæmismörk en Kim er ekki þekkt fyrir það að fara ódýru leiðina í lífinu.
Khloe lét sig líka hverfa stuttu eftir brúðkaupið á meðan að aðrir fjölskyldumeðlimir nutu sín áfram í París og víðar í evrópu.
Það hefur greinilega ýmislegt gengið á í París en Kardashian famelían er ekki þekkt fyrir það að halda sínum skoðunum út af fyrir sig og segja sína meiningu hvort sem öðrum líkar vel eða ekki.
Til hamingju Kim og Kanye eða Kimye eins og slúðurpressan kallar þau, mikið hlakka ég til að sjá fleiri myndir og þáttinn um brúðkaupið þeirra sem verður sýndur á sjónvarpstöðinni E!.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig