Kim Kardashian toppar flestar stjörnur í sjálfsmyndatökum en svo langt er þetta gengið hjá dömunni að hún stefnir á að gefa út bók, bara með sjálfsmyndum sem hún hefur sett á Instagram, Twitter og aðra samskiptamiðla.
Kim, sem er 34 ára, var nýlega spurð að því hvaða fólki hún væri til í að vera með á sjálfsmyndum, hvort sem þau væru lifandi eða dáin, skáldsagnapersónur eða fólk sem hefur verið til.
Kim sat ekki á svörum, hún sagðist vera til í mynd af sér með pabba sínum heitnum Robert Kardashian, Marilyn Monroe og já, – Jesú.
Hún gat ómögulega valið á milli þessara þriggja.
At the zoo with my boo and my baby boo pic.twitter.com/tMtIKyYU4j
— Kim Kardashian West (@KimKardashian) February 2, 2015
Þrátt fyrir að vera hégóminn holdi klæddur er Kim enginn kjáni. Hún veður í peningum enda er hún með vinsæla förðunarlínu, fatalínu, sjónvarpsþætti og mörg fleiri verkefni í gangi sem öll skila henni sandi af seðlum.
Hún er gift einum frægasta tónlistarmanni heims og saman eiga þau dótturina North West sem Kim segir stærsta afrek sitt til þessa.
„Um leið og þú verður mamma þá skiptir allt sem maður gerði áður engu máli. Manni verður bara sama. Barnið fer beinustu leið í fyrsta sæti yfir það sem er númer eitt í forgangsröðinni,” segir hin sjálfumglaða Kim.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.