Kim Kardashian birti nýverið myndir af sér í svakalegri múnderingu á blogginu sínu. Myndirnar hafði hún tekið af sjálfri sér með símanum sínum…
…Með myndunum vildi hún sýna aðdáendum sínum gadda-kjól og Louboutin skó sem hún klæddist í myndatöku fyrir tímaritið Prestige Magazine. Kim prýðir forsíðuna á þessari 5 ára afmælis útgáfu tímaritsins frá Hong Kong.
Kjóllinn sem daman klæddist í myndatökunni er frá The Blonds sem hönnuðurnir Phillipe and David Blond eiga heiðurinn að. Það eru ófáar stjörnurnar sem hafa klæðst hönnun þeirra undanfarið en hún einkenninst meðal annars að RISA göddum og keðjum.
Það er óhætt að segja að þessi forsíða sé ögrandi, Kim í samloku með tvem nöktum karlmönnum.
Hér fyrir neðan getið þið svo séð myndirnar sem Kim setti á bloggið sitt og sjálfar myndirnar sem birtar voru í tímaritinu:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.