Það verður seint sagt, og bara líklegast aldrei, að frú Kim Kardashian West leiðist athygli.
Henni finnst til dæmis mjög gaman að fá athygli vegna útlitsins og reynir hún yfirleitt allt hvað hún getur að vekja athygli á sér, bæði með myndum á Instagram þar sem hún er oft mjög fáklædd eða með því að mæta í djörfum fatnaði á mannamót.
Eitt helsta trikkið hennar er að vera í mjög, mjög flegnum kjólum, jökkum og bolum en á myndinni sem sjá má hér að ofan virðist frúin hreinlega bara vera ber að ofan undir blazer jakkanum sínum.
Hlýtur að vera frekar heftandi að stjórna hreyfingum sínum til að koma í veg fyrir að allt heila klabbið bjóði bara ekki góðan dag.
Eins og sjá má á þessari mynd notar hún samt einhver trikk til að halda þessu á sínum stað líka því ef þú skoðar vel má sjá glitta í svolítið límband við vinstri geirvörtu.
Kim hefur hingað til sýnt mismikið af skoru en eftir að hún byrjaði með bónda sínum Kayne verður skoran meira og meira áberandi. Á myndinni hér fyrir neðan (tekin 2011) er hún nokkuð dönnuð bara með hefðbundna skoru (taktu eftir svipnum á aðstoðarmanninum)…
… en á þessari kveður við nýjan tón enda var hún bara tekin í þessum mánuði.
Kannski styttist bara í að frúin sjáist ber að ofan á næstu samkomu? Það virðist að minnsta kosti ekkert vera að stoppa hana.
Kim hressa
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.