Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian passar upp á barnið sitt…
Aðeins viku áður en Kim giftir sig neituðu hún og systir hennar Khloe að sitja við hliðina uppistandaranum og tískulöggunni Joan Rivers á NBC Upfronts í New York.
„Kim og Khloe áttu að sitja við hliðina á Joan en fengu starfsmenn til að færa sig annað,“ sagði heimildarmaður við UsWeekly.
Samkvæmt RadarOnline mun Joan hafa sagt barn Kim, litlu North, vera ófríða. Að auki sagði hún víst í miðju uppistandi í Beverly Hills í janúar á þessu ári… að Kim þyrfti nauðsynlega að vaxa barnið.
„Bæði Kim og Khloe vilja ekkert drama og nenna ekki lengur að þykjast í kringum Joan,“ sagði heimildarmaður. „Þess vegna báðu þær um að fá að sitja annarsstaðar en við hliðina á henni.“
Þess má geta að Joan Rivers fékk ekki boðskort í brúðkaup Kim Kardashian næstu helgi.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.