Kim Kardashian hefur alltaf neitað að hafa farið í lýtaaðgerðir fyrir utan botox í andlitið (sem sumir myndu kalla smá lýtaaðgerð).
Kim hefur þó breyst mikið í gegnum árin, rassinn hefur stækkað töluvert og er hann orðinn vörumerki hennar, brjóstin hafa einnig stækkað, varirnar orðnar stærri og nefið hefur minnkað og er orðið beinna.
En hver er ástæðan fyrir breyttu útliti Kim? Eru það lýtaaðgerðir eða góðir stílistar, hársnyrtar og förðunarfræðingar? Kim fer reglulega í laser en hárin sem hún lætur fjarlægja eru á enninu, fótum, höndum og á bikinísvæðinu. Fíngerðu hárin sem voru á enninu og við hárrótina hafa horfið eftir þetta og fyrir vikið virðist hún með hærra enni.
Kim hefur játað að hafa farið í bótox. Það kom fram í einum þætti af Keeping up with the Kardashians og mikil dramatík var gerð úr öllu saman. Kim var öll bólgin í framan og marin en hún heldur því fram að það hafi verið fyrsta og eina skiptið sem hún fór í slíkar sprautur.
Þeir sem eru í bransanum segja þó að Kim hafi farið snemma í bótox sprautur til þess að það yrði minna áberandi á andlitinu hennar þegar hún eldist. Það hefur einnig verið sagt að Kim hafi farið í fitusog og aðrar aðgerðir eftir fæðingu North til þess að koma sér í form aftur eftir barnsburð. Kim er æf yfir þeim ásökunum og segist hafa komist í form aftur með réttu mataræði og hreyfingu.
Fas Kim hefur breyst mikið eftir að þau Kanye fóru að vera saman og eftir fæðingu North. Hún brosir nánast aldrei á þeim myndum sem eru teknar af henni. Hún er orðin mjög prívat miðað við áður á samfélagsmiðlum, klæðist síðum og stórum kápum, hárið er ljósara og vilja margir sem eru nánir Kim meina að Kanye stjórni henni í einu og öllu og allt sem hún geri á samfélagsmiðlum sé gert eftir að hann hefur samþykkt það.
Hvað finnst þér? Hefur Kim farið í lýtaaðgerðir eða lifir hún bara heilbrigðum lífstíl sem gerir hana svona sykursæta? Ræðum það á Facebook síðu Pjatt.is
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig