Kim Kardashian er viðskiptakona af Guðs náð og virðist geta grætt á öllu-nema barninu sínu en Kanye vill stjórna því hvaða myndir birtast af North.
Kanye var harðákveðinn í því að þau Kim myndu birta fyrstu myndirnar af North litlu sem og þau gerðu. Kim er hinsvegar gersamlega miður sín að hafa ekki selt myndir af henni til tímarits en hún hefði auðveldlega getað fengið eina milljón dollara fyrir myndirnar.
Kim sveif bara á bleiku skýi fyrstu vikurnar og var þess vegna ekkert að spá í að birta myndir af North í tímariti en núna virðist hún vera farin að naga sig í handabökin og er MJÖG fúl.
En ætlaði hún sér að græða á myndunum og hirða allan peninginn sjálf? Nei heldur betur ekki, Kim hefði sko gefið allt til góðgerðarmála og er með tárin í augunum! Hvað er að frétta?? Eiga Kim og Kanye ekki slatta af seðlum saman? Hvernig væri að gefa smá aura til góðgerðrmála, það þarf ekki að vera milljón dollarar!
Ég veit ekki með ykkur en þetta þykir mér ansi sérstakt í ljósi þess að Kim og Kanye hafa alveg efni á því að gefa peninga til góðgerðarmála. Kim, slepptu því að kaupa eina handtösku þessi jólin og málið er dautt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig