Kim Kardashian er án efa drottning “selfie” myndanna en skvísan virðist vera farin að photoshoppa myndirnar sínar áður en hún birtir þær á veraldarvefnum.
Sérfræðingar í Photoshop segja að hurðin sem er á bakvið Kim sé öll bogin og það sé hreinlega eitthvað bogið við myndina því hlutföllin séu ekki alveg eins og þau eigi að vera eins og til dæmis hurðin og gólfið.
Kim sýndi tvær myndir af sér og vinkonu sinni á instagram fyrir skemmstu. Önnur þeirra af fræga bossanum og hin af magavöðvunum og brjóstunum en hugsanlegt er að Kim hafi stækkað brjóstin og bossann smávegis og minnkað mittislínuna til þess að líta betur út á þessum “selfie” myndum.
Ofurfyrirsætan Miranda Kerr setti photoshopaða mynd af sér á Instagram og fékk mikla gagnrýni fyrir það en fólki finnst alveg nóg að stjörnurnar séu klipptar og togaðar til í tímaritum og finnst síðasta sort að photosjoppa mynd á persónulegan Instagram, Facebook eða Twitter reikning.
Ætli að þetta sé photosjoppað?
Kim hefur lagt hart að sér til að fá vöxtinn “aftur” eftir barnsburð, kannski er þetta bara útkoma alls erfiðisins? Erfitt að segja.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig