Kim Kardashian naut brúðkaupsferðarinnar á Írlandi.
Raunveruleikastjarnan eyddi nokkrum dögum í landinu með nýja eiginmanninum, Kanye West, eftir að þau giftu sig á Ítalíu í síðasta mánuði og einnig skruppu hjónakornin til Prague í Tékklandi áður en þau snéru heim til Bandaríkjanna.
En Kim sagðist þó hafa saknað tæplega eins árs dóttur þeirra, North.
„Átti frábæra brúðkaupsferð á Írlandi og í Prague,“ skrifaði hún á Twitter í vikunni.
„Saknaði North svo mikið. Var spennt að koma heim og fá að kreista hana.“
Kim greindi einnig frá því hvers vegna hún og Kanye völdu Írland fyrir brúðkaupsferðina. Ástæðan var sú að landið hefur alltaf verið sérstakur staður í lífi þeirra.
„Við eyddum saman afmælisdegi Kanye á Írlandi fyrir nokkrum árum síðan og við urðum ástfangin af landinu. Þetta er svo afslappandi staður,“ sagði hún.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.