Kim og Kanye ætla af gifta sig í París, nei í Bandaríkjunum, nei á ítalíu! Hvar enda fyrirsagnirnar um þetta blessaða brúðkaup?
Kim virðist loksins vera búin að ákveða sig og ætlar að ganga í það heilaga þann 24.maí næstkomandi á Ítalíu. Sögusagnir eru þó á kreiki um að þau ætli að fara í dómshúsið fyrst í Bandaríkjunum til að vera löglega gift þar og giftast síðan fyrir framan vini og ættingja með pompi og prakt!
Kim hefur verið ansi dugleg að Instagramma myndir af kroppnum sínum til þess að sýna öllum að hún sé komin í fantaform fyrir brúðkaupið en á rauða dreglinum fyrir Met Gala ballið var hún í kjól sem var með háa klauf og sýndi hann vel tónaða fótleggi hennar.
Kanye lét hafa eftir sér á dögunum að North litla hefði komið undir á Ítalíu en Parísarplönin fóru út í veður og vind eftir að ýmis leyfi gengu ekki í gegn, kannski að þau hafi ákveðið að halda rómantíkinni áfram á Ítalíu vegna góðra minninga þaðan, hver veit!?
Þó hafa skötuhjúin gefið vinum sínum misvísandi upplýsingar um brúðkaupið og virðist enginn vera með það alveg á hreinu hvar það mun fara fram, ég meina ef þetta er ekki sagan endalausa þá veit ég ekki hvað!
Það styttist samt í þetta gott fólk, ég bíð að minnsta kosti spennt enda forfallin aðdáandi þessarar fjölskyldu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig